23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi

· Íþróttir

Í þessum þætti fáum við til okkar hann Anton Svein McKee, fyrrverandi landsliðsmann Íslands í sundi og fjórfaldan Ólympíufara. Anton ræðir af einlægni um sundferilinn, sem spannaði yfir áratug á heimsmælikvarða, og flutninginn til Bandaríkjanna þar sem hann hóf nám og æfingar við Alabama-háskóla árið 2013.
Hann segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu úti, þeim áskorunum og tækifærum sem fylgdu því að æfa og keppa fjarri heimahögunum, og hvernig hann byggði upp þann feril sem gerði hann að einum farsælasta sundmanni Íslandssögunnar.
Þá fer Anton yfir undirbúninginn fyrir Ólympíuleikana, andlegan og líkamlegan ásamt því að deila sinni nálgun á næringu og hvernig hún studdi við æfingaálagið á hverju tímabili fyrir sig.
Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri og foreldra.
Nutreleat appið er LOKSINS komið út og er því hægt að hlaða því niður og prófa frítt í 30 daga. Það hjálpar þér að innleiða og viðhalda tímabilaskiptri næringu samhliða þinni þjálfun:
https://www.nutreleat.is/app
Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:
⁠https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu⁠
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
-Nutreleat teymið

Íþróttanæring með Nutreleat

Úr hlaðvarpinu

Íþróttanæring með Nutreleat

Lilja & Arnar - Sport Nutritionists, M.Sc.

Allir þættir

Fleiri þættir af Íþróttanæring með Nutreleat