21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum
Í þessum þætti fjöllum við um átraskanir í íþróttum, efni sem stendur okkur sérstaklega nærri, þar sem Lilja glímdi sjálf við raskaðar fæðuvenjur og óheilbrigt samband við mat á sínum dansferli og er þátturinn því á persónulegri nótunum en oft áður.
Við förum yfir hvort ástæðurnar á bakvið átröskun hjá íþróttafólki séu í eðli sínu ólíkar þeim sem liggja að baki átröskunum hjá almenningi. Við förum einnig yfir mismunandi tegundir átraskana og ræðum hvað er hægt að gera - bæði þegar kemur að forvörnum, en einnig til að búa til styðjandi umhverfi fyrir þau sem eru að glíma við raskaðar fæðuvenjur og jafnvel átraskanir.
Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara.
Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:
https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
-Nutreleat teymið
Fleiri þættir af Íþróttanæring með Nutreleat
- 25. Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- & efnaskiptalæknir: Beinmeiðsli, næring og hormón28. september 2026
- 24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk14. september 2026
- 23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi31. ágúst 2026
- 22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur17. ágúst 2026
- 20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive20. júlí 2026
- 19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli6. júlí 2026
