25. Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- & efnaskiptalæknir: Beinmeiðsli, næring og hormón
Í þessum þætti fáum við til okkar hana Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni hjá Heilsuklasanum. Sigríður starfaði um árabil sem sérfræðingur á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi og hefur unnið með fjölda einstaklinga með beinþynningu. Hún stofnaði jafnframt vefinn beinheilsa.is, sem hefur það að markmiði að gera fræðslu um beinheilsu aðgengilega á íslensku.
Í þættinum ræðir Sigríður um beinmeiðsli meðal íþróttafólks, en slíkum tilfellum hefur farið fjölgandi á hennar borði. Hún útskýrir hvernig beinin bregðast við þjálfun og álagi, hvað getur legið að baki þegar þau gefa sig og hvers vegna skiptir máli að bregðast við í tæka tíð.
Þá fer Sigríður yfir hvernig næring og æfingaálag hafa áhrif á hormónakerfið okkar, og hvernig það samspil getur ýmist styrkt beinin eða veikt þau, bæði til skemmri og lengri tíma.
Virkilega fræðandi þáttur og mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri, foreldra og þjálfara.
Nutreleat appið er loksins komið út og er akkúrat núna hægt að hlaða því niður og prófa frítt í 30 daga. En það hjálpar þér að innleiða og viðhalda tímabilaskiptri næringu samhliða þinni þjálfun: https://www.nutreleat.is/app
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn – við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir,
-Nutreleat teymið.
Fleiri þættir af Íþróttanæring með Nutreleat
- 24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk14. september 2026
- 23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi31. ágúst 2026
- 22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur17. ágúst 2026
- 21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum3. ágúst 2026
- 20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive20. júlí 2026
- 19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli6. júlí 2026
