19. Birna Kristín Kristjánsdóttir, landsliðskona í frjálsum: Áskoranir, sigrar & allt þar á milli

· Íþróttir

Í þessum þætti fáum við til okkar Birnu Kristínu Kristjánsdóttur, landsliðskonu í frjálsum íþróttum. Birna ræðir af einlægni um óheilbrigt samband við mat og líkamsímynd, ásamt öðrum áskorunum sem hún hefur mætt á ferlinum.
Hún segir frá reynslu sinni af atvinnumannalífinu á Ítalíu og sigrinum á Smáþjóðaleikunum, sem hún vann aðeins 22 ára gömul. Þá deilir hún því hvernig henni tókst að færa hugarfarið frá þeirri hugmynd að hún þyrfti að vera grennri yfir í að nærast í takt við æfingaálag og setja frammistöðu í forgang fram yfir útlit. Birna fer einnig yfir undirbúningsrútínuna sína fyrir keppnir og gefur öðru íþróttafólki dýrmæt ráð.
Mikilvæg hlustun fyrir iðkendur á öllum aldri og foreldra.
Hlekk á 6 vikna netnámskeiðið okkar er að finna hér, og við minnum á afsláttarkóðann Nutreleat15 sem veitir 15% afslátt við skráningu:
https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eða gefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) eða TikTok ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
- Nutreleat teymið

Íþróttanæring með Nutreleat

Úr hlaðvarpinu

Íþróttanæring með Nutreleat

Lilja & Arnar - Sport Nutritionists, M.Sc.

Allir þættir

Fleiri þættir af Íþróttanæring með Nutreleat