1. deild karla: Nýjir leikmenn, jafnir leikir og spennandi staða

· Íþróttir, Fréttir

Í öðru hlaðvarpi okkar um 1. deild karla tímabilið 2018-2019 förum við yfir spárnar okkar frá því fyrir jól og fréttir janúarmánaðar. Sum lið hafa breytt leikmannaskipan sinni talsvert á meðan að önnur hafa látið gott næga. Við ræðum nokkra spennani leiki og hvar liðin gætu endað í deildinni ásamt því að leiðrétta misfærslur úr seinasta hlaðvarpi okkar og ræða 1. deildina almennt. Að lokum spáum við fyrir um næstu leiki í deildinni og hvar styrkleikar liða liggja. Við stefnum síðan á að taka upp þriðja þáttinn um 1. deild karla í byrjun febrúar! Njótið vel!

Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson og Axel Örn Sæmundsson

00:00:30 - Förum yfir spárnar frá því seinast og stöðuna í deildinni núna
00:03:00 - Útúrdúr: Félagaskipta-bölvun á upptökunum?
00:04:00 - Fréttir: Marques Oliver aftur í Fjölni og gengi liðsins rætt
00:10:05 - Fréttir: Miklar róteringar hjá Hetti - Dino, Eysteinn og Andre komnir 
00:17:55 - Fréttir: Þór Akureyri tekur níunda leikinn sinn í röð
00:20:15 - Fréttir: Selfoss bætir við sig leikmönnum, erfiðir leikir framundan
00:23:05 - Leiðréttingar: Rangfærslur um Snæfell og aldur leikmanna
00:25:05 - Úrslit: Hamar-Vestri, spennandi framlengdur leikur
00:31:15 - Spáð í spilin: Breytist staðan í deildinni fyrir úrslitakeppnina?
00:35:15 - Spáð í spilin: Allir leikir til 2. febrúars
00:47:30 - Almennt spjall um deildina undir lokin
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna

Karfan

Úr hlaðvarpinu

Karfan

Karfan

Allir þættir

Fleiri þættir af Karfan