1 á 1: Ari Gunn um ferilinn og brottrekturinn frá Skallagrím
Í þessum þætti af 1 á 1 fáum við umræddasta mann vikunnar í heimsókn. Ari Gunnarsson hefur marga fjöruna sopið sem leikmaður og þjálfari. Farið er yfir ferilinn og góðar sögur rifjaðar upp. Einnig er farið yfir mál vikunnar þar sem Ari var látinn taka pokann sinn hjá Skallagrím og hefur eftir það sagt frá vinnuumhverfinu sem hann þurfti að þola þar.
Podcast Körfunnar er í boði Dominos og minnt er á að hlustendur fá 30% afslátt af sóttum pítsum með kóðanum “karfan.is” panti þeir í gegnum Dominos.is eða með Dominos appinu.
Umsjón: Ólafur Þór Jónsson
Efnisyfirlit:
1:00 - Uppeldið hjá Val
5:00 - Viðkoma í Svíþjóð og Patreksfirði
7:10 - Þrettán ár í Borgarnesi
17:45 - Eftirminnilegustu samherjarnir og mótherjarnir
22:00 - Spilar og þjálfar hjá Hamri
26:45 - Andrúmsloftið hjá KR heillaði
32:45 - Endurkoma til Vals og rýtingur í bakið þar
37:00 - Ari tekur við Skallagrím eftir undanúrslit í bikar
41:15 - Ekkert undirbúningstímabil og viðvörunarbjöllur hringja
47:45 - Brottreksturinn frá Skallagrím frá A-Ö - „Það þarf eitthvað að gerast“
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






