Annar hluti - Sveinbjörn Claessen: Fúll ef við gerum ekki betur en í fyrra
Sveinbjörn Claessen: Fúll ef við gerum ekki betur en í fyrra Sveinbjörn Claessen leikmaður ÍR ákvað að leggja skóna á hilluna síðasta vor eftir 13 ára farsælan feril. Það var búið að vera á dagskránni hjá Körfunni í allt sumar að ná í kappann og gera þessi ár aðeins upp.Úr því varð svo nú síðustu helgi. Afraksturinn tæpir þrír klukkutímar af spjalli, en með því sló Sveinbjörn met sem Hrafn Kristjánsson setti árið 2016 um einhverjar 35 mínútur. Því ekki úr vegi að skipta samtalinu niður í tvo hluta.Í þessum seinni hluta fer Sveinbjörn yfir hvað hafi staðið uppúr á ferlinum, framtíðina hjá ÍR, hverjir séu líklegir á næsta tímabili, þjálfaramál yngri landsliða og margt fleira.Gestur: Sveinbjörn ClaessenUmsjón: Davíð Eldur & Ólafur ÞórDagskrá:00:30 - Getur ekki verið lengi frá Seljaskóla01:30 - Fer að þjálfa á næsta ári03:20 - Fimm manna úrvalslið samherja05:00 - Aldrei dekkað betri leikmenn en Loga og Jón07:30 - Ómar besti liðsfélaginn11:00 - Kann best að meta þá sem gera mest úr sínum hæfileikum11:40 - Breytingar á útlendingareglum22:00 - ÍR er ekki til, með hvaða liði myndi prime Sveinbjörn Claessen vilja spila með? 29:15 - Mikilvægt að semja við Sigurð Þorsteinsson31:00 - Næsta tímabil fyrir ÍR33:40 - Hvaða lið verður Íslandsmeistari?40:00 - Hrafn talar mikið, Sveinbjörn talar meira40:50 - Þjálfaramál yngri landsliða 45:30 - Reifst við góðan mann49:30 - Boðun í landsliðsverkefni53:20 - Liðin hafa aukið faglegheit, KKÍ verður líka að stíga upp
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






