Gunnar Ólafsson - "Hlakka til að mæta gömlum liðsfélögum og vinum"
Nú þegar tímabilið er við það að byrja og flest lið farin að æfa stíft náði Karfan.is góðu spjalli við Gunnar Ólafsson, leikmann Keflavíkur sem er nýbúinn með fjögur ár af háskólabolta hjá St. Francis. Gunnar segir frá sinni reynslu af því að vera úti í New York í háskólanámi og stífu körfuboltaprógrammi í fjögur ár. Hann segir frá hlutverkaskiptum milli ára, æfingaálagi og íþrótta aðstöðunni úti ásamt því að bera saman íslenska boltann við bandaríska háskólaboltann. Þjálfarar, liðsfélagar bæði úti og hérna heima bera á góma og við ræðum hvernig Gunnar komst svona langt og hvert hann stefni næst. Að lokum ræðum við vörn og huglæga þáttinn í körfunni og hvað tilvonandi nýliðar í háskólaboltanum ættu að hafa hugfast. Njótið vel.Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:00:30 - Gunnar kynntur og ræðir árin sín hjá Fjölni00:05:30 - Ákvörðunin að fara til Keflavíkur í fyrsta skiptið00:07:15 - Hvernig Gunnar komst í St. Francis Brooklyn00:10:25 - Fyrsta árið: Einum sigri frá March Madness00:13:10 - Annað árið: Stærra hlutverk - Stopparinn í liðinu00:17:00 - Dagur í lífi Gunnars í háskólaboltanum00:20:05 - Þriðja árið: Færður í fjarkann - fleiri fráköst og meira kjöt00:24:35 - Fjórða árið: Erfið meiðsli og vonbrigði00:28:10 - Aðstaðan, New York lífið og leikjaálagið00:36:25 - Ráð til leikmanna sem eru á leið út í háskólaboltann00:41:25 - Komandi tímabil með Keflavík og gamlir félagar00:46:50 - Að vinda ofan af mikilleika: Árangur og góð vörn00:51:50 - Þjálfarar Gunnars og hvers vegna hann komst svona langt00:55:55 - Huglægi þátturinn og hvað Gunnar hlustar á og les00:59:25 - Lokaráð Gunna
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






