Hannes um landsliðin, Dominos deildirnar, erlenda leikmenn og fleira
Í annað skiptið í sumar náði Karfan.is að tryggja sér viðtal við formann KKÍ til að spjalla um allt körfuboltatengt. Hannes Jónsson settist niður með Karfan.is og ræddi landsliðin og nýafstaðin töp A-landsliðs karla og hvaða merkingu það hafi að þeir séu dottnir úr undankeppni HM. Bosman-reglan bar á góma og Hannes útskýrði hvað gerðist til að reglugerðarbreytingin fór í gegn. 1. deild kvenna verður með 8 lið að keppa á næsta tímabili og við ræddum um eflingu körfuboltans kvenna megin og hvað sé framundan. Neðri deildirnar karla megin voru ræddar stuttlega sem og Dominos Körfuboltakvöld og fjöldi útsendinga. Að lokum sagði Hannes frá því hvernig var að kíkja til New York á nýliðavalið hjá NBA og að vera með Tryggva Snæ Hlinasyni þar og við rétt minnumst á U20 karla sem eru farnir út að keppa.Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 - A-landslið karla eftir fall úr undankeppni HM06:10 - Bosman-reglan rædd og hvernig önnur lönd gera þetta15:00 - Næsta tímabil og 1. deild kvenna18:30 - Efling körfuboltans kvenna megin og U20 kvenna22:30 - Neðri deildir karla24:55 - Dominos Körfuboltakvöld og fjölgun útsendinga27:30 - Nýliðaval NBA og ferð Hannesar þangað33:20 - Örsnöggt um U20 karla
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Sex kanar fyrir KR, brotthvarf Ingva og hverjir eru fúlir yfir landsliðsvalinu?15. nóvember 2026
- Aukasendingin: Leikmannamarkaðurinn hitnar, stór vika hjá stelpunum og Airwaves-draumaliðið8. nóvember 2026
- Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum og brottrekstrarvofan1. nóvember 2026
- Aukasendingin: Grindvíkingar að vakna, of góðir fyrir 1. deildina og bestu liðin á hálfum velli25. október 2026
- The Uncoachables: I Don't Watch The News (or Read It)23. október 2026
- Aukasendingin: Bestu kanarnir, fimm ljósir punktar og uppgjör á síðustu umferð18. október 2026






