Yngvi Páll: Körfuboltabúðir Vestra, starfið á Ísafirði og aðlögunarhæfni þjálfara
Blaðamaður Karfan.is var fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og tók nokkur stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem voru þar. Yngvi Páll Gunnlaugsson, yfirþjálfari Vestra og einn af skipuleggjendum körfuboltabúðanna, kom í viðtal daginn eftir að búðunum lauk til að ræða þær. Við ræddum hvernig hann sæi næsta tímabil fyrir sér og hvernig gengi að fá leikmenn vestur á Ísafjörð. Starfið hjá Vestra varð umræðuefni og væntanleg afreksbraut fyrir íþróttamenn í Menntaskóla Ísafjarðar. Yngvi talar um hvernig þjálfarar bæti sig í starfinu og hvað skipulag og traust skipti miklu máli. Að lokum minnir hann á að þetta eigi að vera það skemmtilegasta sem við gerum og að körfuboltinn geti gefið okkur svo ótrúlega mikið.Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 – Yngvi Páll gerir upp körfuboltabúðir Vestra 2018.03:30 – Staðsetning körfuboltabúðanna, kostur eða galli?04:50 – Hvernig gengur að fá leikmenn vestur á Ísafjörð? 07:00 – Starfið hjá Vestra næstu árin.10:15 – Þjálfarateymið í körfuboltabúðum Vestra í ár.12:00 – Aðlögunarhæfni þjálfara og metnaður þeirra fyrir starfinu.14:15 – Hvernig þjálfarar geta lært af hver öðrum.16:15 – Þjálfarar sem höfðu áhrif á Yngva.18:00 – Hvað leitar Yngvi eftir í leikmönnum sínum?21:05 – Fyrirmyndir Yngva í körfuboltanum á árum áður.23:30 – Að vita hvað þú sért að fá út úr drillum og að vinna skipulega.25:20 – Lokaskilaboðin: "Það er ótrúlegt hvað körfuboltinn hefur gefið manni mikið."
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






