Kristjana um þjálfun, Keflavík og eljuna
Nýr þjálfunar þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar er rætt við Kristjönu Eir Jónsdóttur, þjálfara yngri flokka Keflavíkur, aðstoðarþjálfara U-16 stúlkna og aðalþjálfara U-14 stúlkna. Elja er til umræðu og hvernig leikmenn geti þjálfað það upp í sér sem og hvernig það skilar sér inni á vellinum. Þjálfarar Keflavíkur og sigurvilji Keflvíkinga ber á góma og við ræðum hvaða hlutverki tölfræði ætti að gegna hjá leikmönnum og þjálfurum. Kristjana talar um hvernig ætti að verja æfingatíma og hvað vantar í körfubolta á Íslandi. Að lokum ræðum við það að hætta að svekkja sig og hvað leikmenn og þjálfarar ættu að gera yfir sumarið.Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 – Kristjana ræðir Keflavík og liðin þar02:35 – Hvað er elja og hvers vegna skiptir hún máli?05:35 – Kristjana útskýrir eljuna í Keflavík (og frákastarýrð).07:45 – Áhrifamesti þjálfarinn sem fæstir vita af.10:40 – Hlutverk tölfræði fyrir leikmenn og þjálfara.12:40 – Góðir varnarmenn leyna á sér. Hvað má ganga langt?16:00 – Hvernig skal verja tímanum á æfingum og uppáhaldsvarnardrillur Kristjönu.20:30 – Hvað vantar í körfuboltann á Íslandi?23:10 – Hættið að svekkja ykkur á því sem þið fáið ekki breytt.24:20 – Áherslur Kristjönu á æfingum og mikilvægi styrktarþjálfunar27:25 – Lokaskilaboð Kristjönu út í sumarið.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Sex kanar fyrir KR, brotthvarf Ingva og hverjir eru fúlir yfir landsliðsvalinu?15. nóvember 2026
- Aukasendingin: Leikmannamarkaðurinn hitnar, stór vika hjá stelpunum og Airwaves-draumaliðið8. nóvember 2026
- Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum og brottrekstrarvofan1. nóvember 2026
- Aukasendingin: Grindvíkingar að vakna, of góðir fyrir 1. deildina og bestu liðin á hálfum velli25. október 2026
- The Uncoachables: I Don't Watch The News (or Read It)23. október 2026
- Aukasendingin: Bestu kanarnir, fimm ljósir punktar og uppgjör á síðustu umferð18. október 2026






