Brynjar Þór um þjálfun, síðustu tímabil með KR og framtíðina
Nýr þáttur af Podcasti Karfan.is er kominn í loftið. Þar er rætt við Brynjar Þór Björnsson, fimmfaldan Íslandsmeistara með KR og stofnanda körfuboltaþjálfunar Brynjars. Við ræðum KR og Laugardalinn, streetball með gömlum hetjum og körfuboltaþjálfun Brynjars. Brynjar segir frá hvað honum finnst skipta máli í skotum og hvernig maður verður góður skotmaður. Landsliðið er rætt og við förum gegnum hlutverkaskipti hans frá því að vera eitt helsta sóknarvopn KR yfir í að vera þriggja stiga skytta fyrir landsliðið sem kom af bekknum. Hann segir að lokum frá því að vera reiðubúinn fyrir mómentið og hvernig hann heldur að tilvonandi leikmenn geti undirbúið sig betur í sumar fyrir komandi tímabil.Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 – KR-ingurinn Brynjar Þór og uppeldið í Laugardalnum.05:20 – Körfuboltaþjálfun Brynjars og tilkoma hennar.10:45 – Hvernig maður verður góð skytta, sama hvernig maður skýtur.17:10 – Áhrifamesti þjálfarinn sem fæstir vita af („vertu smart“).22:30 – Æfðu ákveðnar hreyfingar og vertu geggjaður í þeim.26:20 – Uppáhaldsdrillur Brilla.30:05 – Að halda einbeitingu í mótlæti: EM 2015 og EM 201736:05 – Hlutverkaskipti milli KR og íslenska landsliðsins.38:30 – Seinasta körfuboltabókin sem Brynjar las.41:00 – Vertu tilbúinn þegar mómentið kemur: að hrökkva eða stökkva.46:30 – Lokaskilaboð Brynjars út í sumarið.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






