Upphitun fyrir úrslitaeinvígi Dominos deildanna með Vilhjálmi Steinarssyni
Á morgun hefjast lokaúrslit Dominos deildar kvenna með fyrstu viðureign Hauka og Vals í DB Schenker Höllinni í Hafnarfirði. Degi seinn fara lokaúrslit Dominos deildar karla svo af stað í Síkinu á Sauðárkróki með fyrsta leik Tindastóls og KR.Podcast Körfunnar fékk aðstoðarþjálfara Hauka, Vilhjálm Steinarsson, til þess að rýna í báðar viðureignir, fara yfir viðsnúning Hauka síðasta árið og ræða nokkra hluti sem hafa verið að gerast síðustu daga í deildinni.Umsjón: Davíð Eldur og Ólafur Þór Dagskrá:Ferill Vilhjálms, frá Haukum til Keflavíkur og til baka (01:00)Viðsnúningur Hauka frá síðasta tímabili (09:00)8 lið úrslitin gegn Keflavík (21:00)Undanúrslitin gegn KR (26:30)Úrslitasería Tindastóls og KR (39:00)Úrslitasería Hauka og Vals (51:00)Þjálfaraskipti félaga síðustu daga og umræður (62:00)Betri Þjálfun podcast hans og Guðjóns (75:00)
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Sex kanar fyrir KR, brotthvarf Ingva og hverjir eru fúlir yfir landsliðsvalinu?15. nóvember 2026
- Aukasendingin: Leikmannamarkaðurinn hitnar, stór vika hjá stelpunum og Airwaves-draumaliðið8. nóvember 2026
- Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum og brottrekstrarvofan1. nóvember 2026
- Aukasendingin: Grindvíkingar að vakna, of góðir fyrir 1. deildina og bestu liðin á hálfum velli25. október 2026
- The Uncoachables: I Don't Watch The News (or Read It)23. október 2026
- Aukasendingin: Bestu kanarnir, fimm ljósir punktar og uppgjör á síðustu umferð18. október 2026






