(Endurútgefið - Jan 2017) Sverrir Þór ræðir um ferilinn og Keflavík
Keflavík og Tindastóll koma frá hátíðunum í topp sætum Dominos deildanna. Einhverjar breytingar hafa verið gerðar á liðum og körfuboltinn aftur farinn að rúlla eftir ofát og græðgi jólanna.Hið unga og efnilega lið Keflavíkur fær alvöru prófraun strax þegar liðið mætir íslandsmeisturum síðustu þriggja ára Snæfell. Gestur vikunnar er einmitt Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Keflavíkur. Hann er næstleikjahæsti íslendingurinn í evrópukeppnum og hefur orðið íslandsmeistari sem þjálfari allra suðurnesja liðanna.Hann segir frá ferlinum, erlendum leikmanni sem gekk um götur hálfnakinn, efnilegasta leikmanni Dominos deildar kvenna og margt fleira í þessu fyrsta podcasti ársins 2017. Gestur þáttarins: Sverrir Þór Sverrisson Umsjón: Ólafur Þór Jónsson og Davíð Eldur1:10 - Leikmannaferill Sverris10:30 - Eftirminnilegasti liðsfélaginn29:00 - Þjálfaraferill Sverris39:30 - Keflavíkurliðið í dag53:00 - Spurningakönnun1.12:15 - Spá í næstu umferð Dominos deildar kvenna1.16:00 - Spá í næstu umferð Dominos deildar karla
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.
Hér heimsækir þú Körfuna
Fleiri þættir af Karfan
- Aukasendingin: Óvæntustu félagaskiptin, KR Meistari meistaranna og liðin sem reyndu að kaupa titilinn5. október 2026
- Aukasendingin: Bónusdeildin komin af stað, DeAndre Kane ekki týndur og pressan á Arnari Guðjóns29. september 2026
- Aukasendingin: Lagaskipting deildarinnar og fimm bestu Keflvíkingarnir22. september 2026
- Aukasendingin: Uppfærð spá, leikmenn á faraldsfæti og spútniklið síðustu 30 ára17. september 2026
- The Uncoachables: I Call You An Idiot, But I Respect Your Opinion11. september 2026
- Aukasendingin: Stærstu mómentin, pressan mikla og „þak og gólf“ allra liða8. september 2026






