Krakkaheimskviður

RÚV

Fréttir

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar. Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir

Ný kattategund í fyrsta sinn í heila öld

Í þessum þætti Krakkaheimkviða kynnumst við nýrri kattartegund, þeirri fyrstu sem finnst í meira en hundrað ár! Við skoðum heimkynnum hans og heyrum af því hvernig hann fannst og vísindamanninum sem rannsakaði hann.

Ólympíumótið í skák og Íslendingurinn sem vann Magnus Carlsen

Í þessum þætti Krakkaheimskviða fræðumst við um Ólympíumótið í skák sem lýkur nú um helgina. Vignir Vatnar, stórmeistari í skák og liðsmaður íslenska hópsins í Úsbekistan, er gestur þáttarins.

Hvernig breytti 9/11 heiminum?

Í þessum þætti Krakkaheimskviða minnumst við þess að nýlega voru 25 ár liðin frá mannskæðustu hryðjuverkum sögunnar. Hvað var það sem gerðist 11. september 2001 og hvernig breyttu þessir atburðir heiminum? Fréttamaðurinn fyrrverandi Logi Bergmann Eiðsson er viðmælandi þáttarins.

Nýr kóngur í Noregi

Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas norsku konungsfjölskylduna. Haraldur fimmti Noregskonungur lést í lok ágúst og á miðvikudaginn í síðustu viku var hann jarðaður. Hver var hann og hver er það sem tekur við? Allt um það í þætti dagsins.

Sumarfréttir, ráðuneytiskötturinn Larry og hvað er framundan í haust?

Í þessum fyrsta Krakkaheimskviðuþætti sumarsins fara Karitas og Birta yfir helstu fréttir sumarsins, kynnast forsætisráðuneytiskettinum Larry og skoða hvaða fréttamál eru framundan í haust.

SUMAR: Ránið á Louvre

Í næstu viku hefst ný þáttaröð af Krakkaheimskviðum. Í dag ætla ég þess vegna að rifja upp uppáhaldsfréttina mína frá síðasta vetri, um ránið á Louvre.

SUMAR: Hvað er Evrópusambandið

Íslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu núna í lok ágúst um það hvort við viljum skoða inngöngu í Evrópusambandið. Það er því ekki úr vegi að rifja upp umfjöllun frá því í vor um ESB, eftir sögulegar kosningar í Ungverjalandi.

SUMAR: Saga símans

Vissuð þið að í dag, 16. ágúst, eru nákvæmlega 32 ár frá því að fyrsti snjallsíminn var kynntur til sögunnar? Í mars voru svo 150 ár frá allra fyrsta símtalinu, við rifjum upp þáttinn um sögu símans í dag.

SUMAR: Sögulegur sólmyrkvi

Á miðvikudaginn verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á stórum hluta Íslands. Stjörnu-Sævar sagði okkur allt um hann í júní.

SUMAR: Aðför gegn transfólki

Næstu helgi er Reykjavík Pride, Gleðigangan sjálf. Af því tilefni er gott að kynna sér aftur bakslagið sem hefur orðið í réttindum hinsegin fólks, umfjöllun frá því í maí 2025.

Þér gæti líka líkað...