S306: Er ofurkonan að örmagnast?
Í þætti vikunnar mættu Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi og formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður í viðtal. Þær gerðu upp vel heppnaðan fund Kvennahreyfingarinnar í vikunni sem bar yfirskriftina „Ofurkonan vs. tradwife“.
Í viðtalinu ræddu þær við Sonju og Þórhall Val um jafnréttisbaráttuna, uppgang úreltra kynjahugmynda, ýmsar ranghugmyndir um leikskólavist, þátttöku karla í jafnréttisumræðunni og margt fleira.
Í fyrri hluta þáttarins ræddu Ásta Guðrún, Þórður Snær og Þórhallur Valur um lélegustu reiknivél sögunnar sem Framsókn kynnti til leiks í vikunni, villandi framsetningu kvótakóngs um þróun veiðigjalda, hvað ríkisstjórnin hefur gert í málefnum barna og bjartsýna hagspá Landsbankans.
Fleiri þættir af Kratinn
- S310: Liðhlaupi, sleggjan virkar og skoðanir ungra manna á hinu og þessu20. nóvember 2026
- S309: Gervihagræðingarhópur, farsahöfundurinn Sigurður Ingi og menntamál13. nóvember 2026
- S308: Ýkt hægrisveifla, fæðingarorlofsmál og nýi Pírataflokkurinn6. nóvember 2026
- S307: Öxin hennar Hildar, Alþýðusambandið og meintur miðjuflokkur2. nóvember 2026
- S305: Jafnaðarstefnan kjörnuð og drottningarviðtal við Guðmund Ara16. október 2026
- S304: Kolbrún Bergþórsdóttir í viðtali við meintan fjölmiðil9. október 2026






