S310: Liðhlaupi, sleggjan virkar og skoðanir ungra manna á hinu og þessu
Í hlaðvarpi vikunnar var hið svokallaða „manosphere” eða karlahvolf heimsótt. Arnar Þór og Þórhallur Valur fengu til sín Arnar Inga Ingason tónlistarmann og Jónas Má Torfason oddvita flokksins í Kópavogi til þess að fara yfir málefni líðandi stundar út frá sjónarhóli karlmanna í yngri kantinum. Þeir greindu vistaskipti ungs karlmanns að norðan milli þingflokka, ræddu drauma sína um breytingar á stefnu Samfylkingarinnar, dýrasta tölvuleik sögunnar, hugmyndir Ásdísar Kristjánsdóttur um að selja Landsbankann til að borga fyrir vegaframkvæmdir í Reykjavík og möguleg viðbrögð við slíku á landsbyggðunum ásamt fleiru.
Í fyrri hluta þáttarins veitti Ásta Guðrún innsýn inn í tilfinningalíf þingmanna sem íhuga liðhlaup og tíundaði skoðun sína á því hvernig best sé að bera sig að slíkri framkvæmd.
Þórður Snær fór yfir vaxtaákvörðun Seðlabankans og ritið Peningamál sem gefið var út í vikunni þar sem Ásgeir og félagar í bankanum virðast lýsa því yfir að sleggjan sé að virka. Þá ræddi teymið kröfu stjórnarandstöðunnar um að hætta við þingfund svo þau kæmust á fund úti í bæ.
Fleiri þættir af Kratinn
- S309: Gervihagræðingarhópur, farsahöfundurinn Sigurður Ingi og menntamál13. nóvember 2026
- S308: Ýkt hægrisveifla, fæðingarorlofsmál og nýi Pírataflokkurinn6. nóvember 2026
- S307: Öxin hennar Hildar, Alþýðusambandið og meintur miðjuflokkur2. nóvember 2026
- S306: Er ofurkonan að örmagnast?23. október 2026
- S305: Jafnaðarstefnan kjörnuð og drottningarviðtal við Guðmund Ara16. október 2026
- S304: Kolbrún Bergþórsdóttir í viðtali við meintan fjölmiðil9. október 2026






