7. Rakel Þorsteins
Í nýjasta þættinum af Lífið á meðan fæ ég til mín hana Rakel Þorsteins.
Rakel segir svo fallega og einlægt frá pabba sínum sem lést eftir erfiða baráttu við krabbamein.
Hún deilir með okkur hvernig það var að vera dóttir manns sem greindist ekki bara einu sinni heldur þrisvar og lifa með þeirri óvissu, ótta og sorg sem fylgir því að elska einhvern svona mikið.
Það sem snerti mig mest var að heyra hana tala um sambandið þeirra á milli.
Hversu náin þau voru og hvað hann var stór og mikilvægur partur af lífinu hennar ♥️
Rakel talar líka svo einlægt um sorgina sem fylgir því að horfa á manneskjuna sína breytast í veikindum.
Hvernig lífið verður aldrei aftur eins og hvernig maður þarf einhvern veginn að læra að lifa með nýjum raunveruleika sem maður bað aldrei um.
Þessi þáttur hittir mjög nærri heim hjá mér.
Ekki bara vegna umræðunnar sjálfrar heldur líka af því að við Rakel höfum verið vinkonur síðan við vorum litlar stelpur. Það var eitthvað svo sérstakt við að setjast niður með góðri vinkonu sinni og eiga þetta samtal á svona djúpum, hráum og einlægum nótum 🤍
