13. Vilborg

· Heilsa

Vilborg Davíðsdóttir kom til mín og vá hvað ég mæli meðþessu samtali. Við förum yfir bókina hennar Ástin, drekinn og dauðinn,aðstandendahlutverkið og eiginlega um víðan völl í kringum veikindi, sorg,börn, vonina og lífið á meðan.
Vilborg er rithöfundur, þjóðfræðingur og algjörævintýrakona. Í bókinni segir hún frá vegferð sinni og mannsins síns í gegnumveikindin, síðustu dagana hans og þegar hún verður ekkja. Hún gefur ótrúlegainnsýn í það hvernig er að elska einhvern í gegnum veikindi og vita um leiðhvert stefnir, en án allrar væmni.
Það sem mér fannst svo magnað er hvernig hún nær að tala alveg beint umerfiðustu hlutina en halda samt svo fast í lífið. Vonin þarf ekki alltaf aðvera að allt verði gott. Hún getur líka bara verið von um góðan dag, góðankaffibolla eða eitthvað lítið og gott í dag.
Eitt sem sat sérstaklega í mér var hvað það getur veriðmikilvægt að einhver veiti því bara viðtöku að „Þetta er raunveruleikinn semég lifi í.“ Ekki laga hann, ekki fegra hann heldur bara að sjá hann. Ogbókin, vá. Hún gefur ótrúlega innsýn í aðstandendahlutverkið og mér finnst húnalls ekki bara fyrir aðstandendur. Hún er fyrir okkur öll sem viljum skiljabetur hvað veikindi gera við fólkið í kring og hugsa aðeins meira um lífið,dauðann, sorgina og ástina. Hún skilur alveg helling eftir.
Vilborg er mögnuð og ég er henni svo innilega þakklát fyrirþetta spjall.
Hlustið á þennan ❤️

Lífið á meðan

Úr hlaðvarpinu

Lífið á meðan

Lífið á meðan

Allir þættir

Fleiri þættir af Lífið á meðan