11. Lóa Björk

· Heilsa

Þessi þáttur er aðeins öðruvísi en þeir sem hafa komið á undan.Að þessu sinni fæ ég til mín Lóu Björk Ólafsdóttur, ráðgjafa hjá Krabbameinsfélaginu, í eitt mjög mikilvægt samtal.Ég er kannski ekki alveg hlutlaus þegar kemur að Lóu. Hún hefur hjálpað okkur hjónum mikið og var hluti af Heruteyminu sem reyndist okkur ómetanlegur stuðningur á erfiðum tíma. Fyrir það verð ég henni og Heruteyminu ævinlega þakklát.Við tölum um það sem gerist þegar lífið verður skyndilega allt annað en þú hafðir planað.Af hverju fylgir aðstandendum svona oft sektarkennd? Af hverju missum við okkur stundum á þeim sem okkur þykir vænst um? Hvað er eðlilegt þegar áfall dynur yfir? Hvernig lifir maður með sorg? Hvernig finnur maður sjálfan sig aftur eftir veikindi? Af hverju getur verið svona erfitt að tala um nánd, kynlíf og óttann við dauðann?
Og kannski það mikilvægasta…Af hverju finnst svo mörgum þeir vera einir með tilfinningar sem eru í raun ótrúlega algengar?Lóa fer yfir það hvernig tíminn lækni ekki endilega sorgina, heldur verði maður smám saman stærri en sorgin. Eða þegar hún minnti á að við þurfum að sýna okkur sjálfum meiri mildi. Við erum bara manneskjur.Ég vona að þessi þáttur verði huggun fyrir suma, skilningur fyrir aðra og verkfæri fyrir marga.

Lífið á meðan

Úr hlaðvarpinu

Lífið á meðan

Lífið á meðan

Allir þættir

Fleiri þættir af Lífið á meðan