10. Helga og Björn
Það eru sum samtöl sem breyta engu um það sem hefur gerst en geta breytt miklu fyrir þann sem situr í svipuðum sporum í dag.
Í þessum þætti opna Helga og Björn hjörtu sín og segja af ótrúlegri hreinskilni frá því sem enginn undirbýr foreldra fyrir. Óttanum, óvissunni, geðshræringunni og því hvernig heimurinn getur hrunið á einu augnabliki þegar barnið þitt greinist með krabbamein.
En það sem þau gefa í þessum þætti er meira en saga fjölskyldunnar sinnar. Þau gefa öðrum foreldrum orð yfir tilfinningar sem geta verið svo erfitt að bera ein. Þau minna á að það er hægt að finna sig svo óendanlega einn í svona aðstæðum, en maður er það ekki.
Ég held að þessi þáttur muni snerta marga og ég held líka að hann muni hjálpa 🤍
