8. Laufey Hanna
Í þessum þætti fæ ég til mín Laufeyju sem segir frá því þegar systir hennar greindist með krabbamein á sama tíma og þær voru báðar óléttar.
Við ræðum óttann, samviskubitið, óvissuna og hvernig lífið getur breyst á einu augnabliki. Um það að standa við hlið einhvers sem maður elskar og reyna að fóta sig í aðstæðum sem enginn er undirbúinn fyrir.
Þetta er ekki bara saga um veikindi.
Heldur saga um systraást, von og það sem við segjum stundum ekki upphátt ❤️
