Samtíminn er eins og heimsmeistaramót í volæði. Enginn er maður með mönnum nema á honum sé troðið. Þegar kveikt er á fréttum virðist sem við höfum aldrei átt jafnbágt. Vogi einhver sér að halda öðru fram er viðkomandi vanalega sakaður um illsku, heimsku eða forréttindablindu.
Fornleifafræðingar við Bournemouth-háskóla á Englandi halda því fram að Verica, keltneskur leiðtogi sem sagður er hafa fengið Rómakeisara til að ráðast inn í Bretland árið 43, hafi verið kona. Í fréttum er fullyrt að gamall kóngur hafi verið drottning. Á Íslandi telur gamall forseti sig hins vegar enn kóng.
Í dag eru fimmtíu dagar til jóla. Fyrir utan hús nágranna míns situr beinagrind og les Schopenhauer. Sennilega verður hún sú eina í götunni sem mun upplifa aðventuna með þeim hætti sem við þráum flest.
Í síðasta mánuði fór fram á vegum læknadeildar Harvard-háskóla málfundur um offitu. Á fundinum var dregið í efa að offita hefði neikvæð áhrif á heilsu. Þyngdarstjórnunarlyf á borð við Ozempic voru sögð verkfæri heimsvaldasinna og uppáskrift þeirra fasismi.
Í vikunni útbjó ég hvatakerfi fyrir sex ára son minn: Ef hann væri duglegur að gera heimavinnuna sína á hverjum degi fram að jólafríi í skólanum fengi hann verðlaun. ÞÚ TRÚR EKKI HVAÐ GERÐIST NÆST.
„Hvers vegna eru Bandaríkjamenn feitir?“ spurði blaðamaðurinn Michael Pollan í metsölubókinni The Omnivore’s Dilemma sem í ár á 20 ára útgáfuafmæli. Samkvæmt Pollan lá svarið ekki aðeins í stórum skammtastærðum og lítilli hreyfingu heldur einnig í landbúnaðarstefnu Richards Nixon.
Eiginmaður minn fór á pöbbinn nýverið til að horfa á fótboltaleik. Svo að hann sæi á sjónvarpsskjáinn þurfti hann að horfa til hliðar allt kvöldið. Liðið hans vann. Hann hefur hins vegar ekki getað snúið höfðinu fram síðan.
Nýjar rannsóknir sýna fylgni milli neyslu omega-3 fæðubótarefna og hraðari hugrænnar hnignunar hjá eldra fólki. Eigum við öll að henda lýsistöflunum okkar í ruslakörfuna?