#136 - Sigursteinn óttast mest að konan hans fari holu í höggi
Sigursteinn Ingvar Rúnarson, betur þekktur sem Sir Spilar golf, mætti til okkar í Seinni níu. Hann ólst upp á golfvellinum hjá Golfklúbbnum Ós á Blönduósi og er í dag ein þekktasta YouTube-stjarna íslenska golfheimsins. Sigursteinn segir frá því hvernig myndböndin verða til og hvernig það er að taka upp efni á meðan leikið er með ókunnugum.
Í þættinum komum við víða við. Sigursteinn segir okkur frá því þegar hann varð klúbbmeistari hjá La Cala á Spáni og velur einnig tvö draumaholl þar sem hárprúður kylfingur kemur við sögu.
Sir kom líka með magnaða kraftröðun þar sem hann fer yfir það sem kylfingar ættu alls ekki að segja við Stebba Hilmars á golfhring. Svo ræddum við hvað Sigursteinn óttast mest, og svarið kom úr nokkuð óvæntri átt: að konan hans fari holu í höggi á undan honum. Logi tengdi sterkt við þá umræðu.
Fleiri þættir af Seinni níu
- #138 - Gurrý braut dræverinn í golfhermi16. nóvember 2026
- #137 - Adam Ægir segir holu í höggi á par3 velli gilda8. nóvember 2026
- #135 - Haukur spilaði fimm golfvelli á einum degi26. október 2026
- #134 - Örn valdi alls ekki draumahollið19. október 2026
- #133 - Karen varð Íslandsmeistari átta ár í röð en hefur ekki enn farið holu í höggi12. október 2026
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026






