#138 - Gurrý braut dræverinn í golfhermi
Gestur Seinni níu þessa vikuna er engin önnur en Gurrý Jónsdóttir, snyrtifræðingur og hlaðvarpsstjórnandi. Gurrý byrjaði aftur í golfi árið 2022 en hafði æft golf sem barn. Hún er því með fína sveiflu og er býsna högglöng.
Hún hefur oftar en einu sinni slegið alla leið inn á flöt á par-4 braut og segir fátt toppa þá upplifun. Gurrý er nú með golfdellu á háu stigi sem hún deilir með sambýlismanni sínum, Agli Einarssyni, sem kom einmitt í þáttinn til okkar fyrir rúmu ári.
Brotinn dræver í golfhermi, átta tíma golfhringur á Lo Romero, ein í strákagolfferð og golfhögg í túrista koma við sögu í þessum stórskemmtilega þætti. Draumahollið og kraftröðunin eru á sínum stað.
Fleiri þættir af Seinni níu
- #137 - Adam Ægir segir holu í höggi á par3 velli gilda8. nóvember 2026
- #136 - Sigursteinn óttast mest að konan hans fari holu í höggi2. nóvember 2026
- #135 - Haukur spilaði fimm golfvelli á einum degi26. október 2026
- #134 - Örn valdi alls ekki draumahollið19. október 2026
- #133 - Karen varð Íslandsmeistari átta ár í röð en hefur ekki enn farið holu í höggi12. október 2026
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026






