#137 - Adam Ægir segir holu í höggi á par3 velli gilda
Við fengum knattspyrnumanninn Adam Ægi Pálsson í heimsókn til okkar í Seinni níu. Adam er einn af skemmtilegri knattspyrnumönnum landsins og það er óhætt að mæla með þessum þættinum.
Það er ekki langt síðan að Adam byrjaði í golfi og hann er algjörlega fallinn fyrir íþróttinni. Hann tók miklum framförum í sumar og er með um 14 í forgjöf.
Adam fór holu í höggi á dögunum en vandamálið var að það var á par-3 velli. Eftir mikla rannsóknarvinnu er Adam á þeirri skoðun að það eigi að gilda - og í meðvirkni okkar í Seinni níu þá tókst Adam til að fá okkur til að votta þennan ás.
Í þættinum svarar Adam.hressilega fyrir sig en í nýlegum þætti Seinni níu var hann ásakaður um að vera ekki sá besti í að telja höggin sín. Kraftröðun og draumaholl á sínum stað.
Algjörlega frábær þáttur sem við mælum eindregið með!
Fleiri þættir af Seinni níu
- #138 - Gurrý braut dræverinn í golfhermi16. nóvember 2026
- #136 - Sigursteinn óttast mest að konan hans fari holu í höggi2. nóvember 2026
- #135 - Haukur spilaði fimm golfvelli á einum degi26. október 2026
- #134 - Örn valdi alls ekki draumahollið19. október 2026
- #133 - Karen varð Íslandsmeistari átta ár í röð en hefur ekki enn farið holu í höggi12. október 2026
- #132 - Blindar golfholur í uppáhaldi hjá Jóa Fel5. október 2026






