Sterk saman

Tinna Gudrun Barkardottir

Menning & listirHeilsaAndleg málefniBörnin

Sterk saman er spjallþáttur þar sem fólk með reynslu kemur og segir söguna sína auk þess sem við fáum sérfræðinga og fagfólk í settið til okkar.

#196 Aníta Rakel Svanhildardóttir

Aníta Rakel er 17 ára stelpa úr Þorlákshöfn sem ólst upp við mikið ofbeldi af hálfu föður síns. Hún fór í gegnum fósturkerfið og var misheppin þar.

#195 Karen Líf Svanlaugardóttir

Karen er 18 ára stelpa sem stundar nám við Kvikmyndaskólann. Hún missti móður sína aðeins átta ára, horfði upp á föður sinn taka of stóran skammt, lenti í ofbeldi, fósturkerfinu og neyslu.

#194 Ívar Örn

Ívar ólst upp í Vestmannaeyjum í miklum sársauka og sorg en þegar hann fæddist höfðu foreldrar hans þegar misst tvo syni. Hann varð afar meðvirkur og þróaði síðan með sér fíkn.

#193 Hilma - Hávarður Máni

Hávarður Máni lést 2. september 2025 eftir að hafa verið fastur í geðrofi í rúmt ár. Hilma Dögg, móðir hans segir okkur söguna hans og ferlið eftir að hann lést.

#192 Klara - Geðdeild og fangelsið reyna að koma Anítu í gröfina

Klara, móðir Anítu, sem nú er vistuð í einangrunarklefa á Hólmsheiði vegna plássleysis segir okkur frá stöðunni og meðferðinni sem dóttir hennar þarf að þola.

#191 Óskar Brynjólfsson

Óskar er þriggja barna faðir að vestan sem ólst upp við mikinn alkóhólisma, rótleysi og vanrækslu. Hann byrjaði ungur í neyslu til að deifa eigin vanlíðan og flýja raunveruleikann. Hann hefur verið í bata í rúm fimm ár.

#190 Gugga Inga

Guðbjörg Inga sem var þekkt áður sem önnur af tvíeykinu Jói og Gugga er búin að vera edrú og í bata í 15 ár. Hún byrjaði ung í neyslu og segir okkur sína sögu.

#189 Ísak Hafþórsson

Ísak er 25 ára strákur úr Hafnarfirði sem passaði aldrei inn í skólakerfið og lenti í einelti. Hann leitaði mjög ungur í neyslu og fann þar fyrst frið og upplifði að tilheyra.

#188 Tómas Torres

Tómas er 38 ára tveggja barna faðir sem fæddist í Bandaríkjunum þar sem mikil neysla og ofbeldi, af öllum toga, einkenndi heimilislífið og hans uppvöxt. Hann á stóra, mikla og átakanlega sögu.

#187 Fanney Barkardóttir

Fanney er 38 ára gift, tveggja barna móðir sem hefur þurft að eiga við kerfið vegna eldri dóttur sinnar en fær hvergi aðstoð.

Þér gæti líka líkað...