#20 - Harpa Hödd Sigurðardóttir - "Hvað er það besta sem gæti gerst?"
Harpa Hödd er framkvæmdastjóri Mannauðs- og samskiptasviðs hjá Eimskip. Það sem ekki öll vita er að Eimskip er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í yfir 20 löndum, í nokkrum heimsálfum.
Harpa segir okkur frá þeim fjölmörgu verkefnum sem falla til á hennar sviði sem hefur nýlega kynnt nýja stefnu fyrirtækisins og eru í miðri innleiðingu á henni. Fyrirtækið er með öfluga leiðtogaþjálfun, arftakaáætlanir og leggur mikið upp úr jöfnum tækifærum kynjanna.
Á persónulegum nótum segir hún okkur frá hvernig hún hefur vaxið í starfi, talar um mikilvægi þess að grípa tækifærin og jafnvel skapa þau sjálf.
Ekki missa af þessum fróðlega og áhugaverða þætti.
Fleiri þættir af Tékk-inn með Helgu og Örnu
- #27 - Gervigreind sem vinnufélagi framtíðarinnar?5. október 2026
- #26 - Tékk-inn með Mannauði28. september 2026
- #25 - Vinnustaðir og geðrækt21. september 2026
- #25 - Vinnustaðir og geðrækt21. september 2026
- #24 - Vöxtur byrjar þar sem öryggið endar8. september 2026
- #23 - Herdís Pála Pálsdóttir - Sjálfsforysta24. ágúst 2026






