Hversdagsleikinn getur heltekið okkur. Það er ekkert meira grámygluhversdagslegt og þriðjudagar. En við gefum skít í það og kúplum okkur aðeins út og veltum hlutunum fyrir okkur.

25.Lokaþáttur
Í þessum lokaþætti, í bili að minnsta kosti, lítur Pétur aðeins til baka á þættina 24. Vangavelturnar í þessum þætti er um sjálfið okkar eða egóið. Hvar eru skilin á því að vera fullur af sjálfum sér, egóisti eða vera ekki nógu góður við sig? En hver er munurinn á að njóta en ekki þjóta og að hafa gaman? Eða er það sami hluturinn? Síðasta vangavelta hlaðvarpsins er svo um það hvað það er að vera farsæll? Kannski er það að vakna brosandi á hverjum degi…

24.Jólin eru...
Í þessum þætti talar Pétur um birtingarmynd jólanna, kannski ekki síst fyrir börnin. Jólin eru barnsleg eftirvæntingin, það eru ýmsir viðburðir, það er uppbygging alla aðventuna, dagatal, skór í glugga og álfur sem gerir óskunda.Svo kemur jóladagur og þá eru pakkarnir uppteknir, ekkert í skónum, ekkert dagatal og álfurinn farinn heim. Eru jólin því bara eftirvæntingin og tilhlökkunin? Því getur hver og einn svarað fyrir sig.

23.Svona eru jólin
Í þessari viku er litið til aðventunar sem senn gengur í garð. Pétur ræðir um neysluhyggju okkar, um kvíðann sem getur dunið yfir þegar jólin nálgast, jólakvíði. Það þarf að finna réttu gjafirnar og standa sig í jólaboðum en svo þarf líka að huga að heilsunni og réttu buxnastærðinni. Hún getur verið breytileg ef þú ætlar til dæmis að smakka alla jólabjórana sem koma á markaðinn. Eða fara á öll jólahlaðborðin sem eru í boði á svæðinu. Svo getur aðventan, sem er oft með marga viðburði í boði, kallað á svokallað fomo (fear of missing out) sem í hinum ágæta sjónvarpsþætti Kappsmáli er þýtt sem útundanótti. Er aðventan farin að teygja sig full mikið inn í nóvember með til dæmis jólalögum, öli og matarveislum?

22.Efasemdir
Í þessum 22.þætti veltir Pétur fyrir sér hvers vegna sumir ná oft meiri árangri en aðrir. Er það heppni og vinnusemi eða kemur fleira þar við sögu? Er einhver sérstök heppni sem fylgir sumum, eins og til dæmis íþróttafólk sem er sigursælt. Eða er þetta klippt og skorið, þú verður bara að leggja meira á þig? Er kannski eitthvað yfirnáttúrulegt við suma sem til dæmis gera gull úr öllu sem þeir snerta? Eða er það trúin sem sumir hafa á sjálfa sig, það sem skilur á milli hvort þú nærð árangri eða ekki? Stöðva efasemdir suma? Þessar raddir innra með okkur sem segja okkur að við getum þetta ekki eða að þetta verði vonlaust.

21.Draugar seinni hluti
Í þættinum skoðar Pétur draugamenningu á Íslandi. Er hún til? Vitnað er í gamlar heimildir um miðilstörf Láru miðils, sem staðin var að svindli þegar hún hélt skyggnilýsingarfundi. Við heyrum frásögn konu sem bjó í húsi með miklum reimleikum og heyrum hvernig undarleg hegðun kattarins hans Péturs og óútskýranleg hljóð áttu sér stað við gerð þáttarins. Engar fullyrðingar eru um tilvist drauganna, því það hefur hvers sína trú á því

20.Draugar, fyrri hluti
Í þessari viku er það fyrri hluti af tveimur sem fjallar um drauga, fyrirboða og aðrar víddir. Í þættinum eru skoðaðir samanburðir á draugatrú Íslendinga síðustu 50 ár og meðal annars skoðaðar nýlega rannsóknir í þeim efnum. Einnig fáum við að heyra sögu af einstakling sem dreymdi fyrir náttúruhamfarir fyrir nærri 30 árum.

19.Rangur maður
Þessa vikuna veltir Pétur fyrir sér hvernig skal greina kjarnann frá hisminu þegar einhver gefur ráð um eitt og annað. Eins og til dæmis heilsuráð, hvaða starf þú átt að taka eða bara hvernig skuli bregðast við einhverjum aðstæðum. Að vera rangur maður eins og segir í laginu getur komið til þegar viðkomandi hlustar á margar mismunandi ráðleggingar en hefur ekki sjálfstraust til þess að standa mér sínum. Og mögulega getur samanburður leitt til óhamingju. Þá er nokkrum áhugaverðum spurningum slegið inn í google, eins og til dæmis: Hvernig verð ég 100 ára og áhugaverð svör sem koma þar í ljós.

18.Hvað er svona merkilegt við það?
Í þessari viku er grein sem birtist á Akureyri.net í janúar sl.að mestu umfjöllunarefnið. Þar var fjallað um málefni sem þá voru í fréttum og fjölluðu um karla í samskiptum við konur. Líka um að konur gætu ekki þetta eða hitt. Pétur vitnar í ýmislegt sem í gegnum tíðina hefur þótt kerlingalegt að gera eða ýmislegt sem karlar eiga að gera en konur geta ekki. Til dæmis fyrir 25 árum hafi börnin hans verið spurð hvort mamma þeirra hafi bakað heimabakaða brauðið en þá hafi þótt skrítið þegar þau svöruðu;”nei, pabbi bakaði það”. Megininnihald þáttarins er: Hann, hán, kvár, hún eða hvað sem þú skilgreinir þig, allir geta borið áburðarpoka eða lakkað neglur.

17.Mig langar að trúa þér
Pétur er að velta fyrir sér völdum og stjórnunarháttum. Spyr hvort það sé algengt að með auknum völdum fari fólk að snúa meira á sannleika og heiðarleika? Eru þegnar þessa lands aldrei ánægðir og gagnrýna innihaldsslaust allt sem gert er við stjórnun landsins? Varla fer einhver út í pólitík til þess að hugsa eingöngu um eigin hagsmuni? Eigum við flest erfitt með peninga og völd, sem leiðir til þess að við gerum allt til að okkur gangi sem best og skítt með hina? Til þess að rýna betur í málin fer Pétur á alnetið til að skoða betur hvað til dæmis hugtök eins og kapítalismi þýðir. Eða sósíalisti. Niðurstaðan fæst hjá hverjum og einum. Þó kemur fram að í gegnum broslegar útskýringar á hugtökum og útskýringum, þá leynist mögulega einhver sannleikur í gegnum húmorinn.

16.Sólbrendur með quick tan brúsa
Í þessari viku er Pétur rétt nýkominn frá ferðalagi frá Ítalíu og situr við gluggann með haustlægðina í bakgrunni og ræðir um ferðalög okkar Íslendinga síðustu 50 ár. Hvernig við hegðum okkur í dag í samanburði við til dæmis fyrir 50 árum þegar við fórum á sólarströndina. Að einu sinni voru myndaalbúm skoðuð hjá ferðalöngum sem voru á sólarströnd, tollurinn og Tobleron yfir ferðasögunni en núna, kemur hún samstundis á samfélagsmiðlum. Einnig tala Pétur um að honum þyki hálfgerð rómantík yfir sögnum af ferðum Íslendinga til Spánar sjötíu-og eitthvað, þegar við vorum eins og íslenskir víkingar í ránsferð, sem í því tilfellinu var ódýrt áfengi. Margt hefur því breyst og þá er ástæða til að spyrja; hvernig verður þetta eftir 40 ár. Mun allt breytast jafn mikið varðandi ferðalög eins og það hefur gerst á síðustu 40 árum? Eina fullyrðingin varðandi ferðalög sem sett eru fram í þættinum er, að heima er alltaf best.


