Thomas Sowell – Frá fátækt til frama - 1. þáttur

· Pólitík

Hvernig verður fátækur drengur, sem hættir í framhaldsskóla og þarf ungur að sjá fyrir sér sjálfur, einn áhrifamesti hugsuður bandarískrar frjálshyggju?
Thomas Sowell fæddist árið 1930 í Norður-Karólínu, inn í samfélag þar sem fátækt og kynþáttaaðskilnaður settu blökkumönnum þröngar skorður. Hann missti foreldra sína ungur, ólst upp hjá ættingjum og fluttist síðar til Harlem í New York. Þar kynntist hann fátækt, atvinnuleysi og erfiðri lífsbaráttu. Hann hætti í framhaldsskóla og vann ýmis láglaunastörf, en lét aldrei af áhuga sínum á bókum, menntun og því að skilja samfélagið.
Með þrautseigju, hæfileikum og hvatningu frá fólki sem varð á vegi hans tókst Sowell að brjótast til mennta. Hann lauk námi við Harvard, Columbia og Chicago og varð síðar einn þekktasti hagfræðingur og þjóðfélagsrýnir Bandaríkjanna.
En Thomas Sowell var ekki alltaf málsvari frjáls markaðar og einstaklingsfrelsis. Á yngri árum var hann sannfærður marxisti og taldi að sósíalisminn gæti skapað réttlátara samfélag.
Í fyrsta þætti um helstu hugsuði frjálshyggjunnar rekjum við óvenjulega ævi Thomas Sowells, allt frá fátækt til menntunar og frama. Þetta er saga um erfiðleika, tækifæri, sjálfstæði og mann sem neitaði að láta uppruna sinn ráða framtíðinni.
Í næsta þætti segjum við frá því hvernig marxistinn Thomas Sowell sneri baki við sósíalismanum og varð einn skýrasti gagnrýnandi ríkisafskipta og miðstýringar.

Fleiri þættir af Alltaf til hægri - Óli Björn