Thomas Sowell – Marxistinn sem snerist til frelsisins - II. hluti
Hvað fær sannfærðan marxista til að snúa baki við sósíalismanum og verða einn áhrifamesti málsvari frjáls markaðar og einstaklingsfrelsis?
Thomas Sowell hafði kynnst sárri fátækt, atvinnuleysi og kynþáttafordómum. Á yngri árum heillaðist hann af kenningum Karls Marx, sem honum þóttu veita sannfærandi skýringar á efnahagslegu misrétti og óréttlæti. Hann trúði því að sósíalisminn gæti skapað betra og réttlátara samfélag.
En reynslan og hagfræðilegar rannsóknir urðu til þess að hann fór smám saman að efast um eigin sannfæringu.
Í öðrum þætti Hugsuða frjálshyggjunnar rekjum við hugmyndafræðilega vegferð Sowells. Við kynnumst áhrifum Milton Friedmans og Chicago-skólans og segjum frá rannsókn hans á áhrifum lágmarkslauna í Púertó Ríkó. Sú reynsla varð til þess að hann endurskoðaði hugmyndir sínar um ríkisvaldið.
Sowell komst að þeirri niðurstöðu að stjórnmálamenn og embættismenn væru háðir sömu mannlegu takmörkunum og aðrir. Þeir hefðu hvorki ótakmarkaða þekkingu né væru lausir undan áhrifum eigin hagsmuna. Hann fór að leggja sífellt meiri áherslu á frjálsa samkeppni, verðkerfið, persónulega ábyrgð og frelsi einstaklinga til að taka eigin ákvarðanir.
Þetta er saga um mann sem hafði hugrekki til að endurskoða hugmyndir sem hann hafði aðhyllst um árabil.
Fleiri þættir af Alltaf til hægri - Óli Björn
- Thomas Sowell: Hugmyndir sem ögra valdinu - III.8. nóvember 2026
- Thomas Sowell – Frá fátækt til frama - 1. þáttur30. október 2026
- Skilvirk leið til að eyðileggja9. október 2026
- Villigötur valdsins29. september 2026
- Nei við tollabandalag - já við heiminum öllum26. ágúst 2026
- Baráttuaðferðir í stjórnmáladeilum16. ágúst 2026






