Thomas Sowell: Hugmyndir sem ögra valdinu - III.

· Pólitík

Hver veit best hvernig við eigum að lifa lífinu? Stjórnmálamaðurinn sem setur lögin, embættismaðurinn sem semur reglugerðirnar eða einstaklingurinn sem þarf að lifa með afleiðingunum ákvarðana sem teknar eru? Hver hefur þekkinguna og hver ber ábyrgðina þegar ákvarðanir reynast rangar?
Þessar spurningar eru rauður þráður í skrifum Thomas Sowells, eins þekktasta og jafnframt umdeildasta hugsuðar bandarískrar frjálshyggju.
Í þriðja og síðasta þætti um Thomas Sowell kynnumst við helstu hugmyndum Sowells og greinum áhrif hans á umræðu um frelsi einstaklingsins, markaðshagkerfið og ríkisvaldið.
Við fjöllum um bókina Knowledge and Decisions, þar sem Sowell sýnir hvernig þekking er dreifð meðal milljóna einstaklinga og hvers vegna miðstýring getur aldrei nýtt hana alla. Í A Conflict of Visions skýrir hann hvers vegna menn hafa gjörólíkar hugmyndir um samfélagið og hlutverk ríkisins. Við kynnumst einnig gagnrýni hans á menntamenn og sérfræðinga sem vilja móta líf annarra án þess að þurfa sjálfir að bera ábyrgð á afleiðingunum.
Sowell hefur ítrekað bent á að engar fullkomnar lausnir séu til, aðeins val milli ófullkominna kosta. Góð áform tryggja ekki góðar niðurstöðu og ríkisafskipti geta haft afleiðingar sem enginn sá fyrir.

Fleiri þættir af Alltaf til hægri - Óli Björn