Breyting en ekki umbylting fyrir íslensk fyrirtæki ef Ísland gengi í ESB

· Pólitík, Samfélagið, Málefni

Ef Ísland gengi í Evrópusambandið þá yrði það breyting fyrir íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu. 
Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Í samtali við Gímaldið segist höfundurinn vona að skýrslan sé gagnlegt framlag inn í umræðuna. 
Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Hallgrím Oddsson hagfræðing og framkvæmdastjóra Evrópustrauma. Það helsta úr viðtalinu:

Skýrslan skoðar þrjú meginsvið: tolla, gjaldmiðil og regluumhverfi og skoðar hvað breytist fyrir íslensk fyrirtæki við ESB-aðild
Ísland er í dag með 0% tolla á flestar vörur. Við aðild tækum við upp ytri tolla ESB sem eru hærri á ýmsum vöruflokkum
Stærsta tollbreytingin gagnvart þriðju ríkjum varðar Kína. Þar eru tollar ESB hærri en núverandi íslenskir tollar
Inni í tollabandalaginu sparast umsýsla og tollskýrslugerð, jafnvel þó tollar séu 0% nú kostar umsýslan sitt
Vextir á fyrirtækjalánum eru yfir 10% á Íslandi en 3–6% í ESB
Upptaka evru tekur langan tíma, þjóðirnar hafa tekið þrjú til nítján ár frá inngöngu í ESB þar til evra var tekin upp
Verðstöðugleiki til lengri tíma yrði betur tryggður með evru en það sem þarf að breytast er hjá okkur, ekki hjá Brussel
Netverslun frá ESB-löndum yrði mun auðveldari fyrir neytendur og minni hætta á tvísköttun
Breytingarnar yrðu mest fyrir landbúnaðinn, þar myndi samkeppnisumhverfið breytast verulega en ekki er rýnt sérstaklega í þau mál frá sjónarhóli framleiðenda
Höfundur telur vanta fleiri greiningar, einkum á áhrifum á landbúnað og einnig samanburð við önnur ríki sem gengið hafa í ESB

Evrópusumar Gímaldsins: Engir smelludólgar, engar upphrópanir, engar ritdeilur. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn. Við teljum niður í þjóðaratkvæðagreiðslu með hnitmiðaðri umfjöllun um það sem þú þarft að vita til að taka ákvörðun í ágúst. Gímaldið stendur vaktina svo þú getir verið í sumarfríi.
 Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Gímaldið

Úr hlaðvarpinu

Gímaldið

Gímaldið

Allir þættir

Fleiri þættir af Gímaldið