Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“

· Pólitík, Samfélagið, Málefni

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, og ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um pólitískar skoðanir sínar og hvort hún skilgreini sig til vinstri eða hægri; um endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvort vinstrið sé horfið af Alþingi. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur almenna velferð hafa gleymst í umræðu um réttindi stakra hópa. Samstarfið við Ingu Sæland fyllir hana auðmýkt á hverjum degi. Kristrún ræðir líka EES samninginn og breytingar í alþjóðastjórnmálum. 
Meðal umræðuefna:

Hvernig Samfylkingin fékk sjálfstraustið á ný.
Af hverju það er feimnismál að vera vinstrimaður á Íslandi.
Af hverju fólk upplifir sig velkomnara í hægri flokkum en vinstri flokkum.
Að farið hafi verið of geyst í alþjóðavæðingu.
Hvaðan fylgi popúlista kemur og hvernig jafnaðarmenn eigi að svara því.
Viðhorf forsætisráðherra til Flokks fólksins sem hún segir misskilinn.
Verja þurfi auknum mannauði og fjármagni til að standa vörð um EES-samninginn.
Gremja í alþjóðasamstarfi fari ekki lengur fram bak við luktar dyr.
Varnir Íslands séu í öruggum höndum, þrátt fyrir stjórnmál Hvíta hússins.

Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Gímaldið

Úr hlaðvarpinu

Gímaldið

Gímaldið

Allir þættir

Fleiri þættir af Gímaldið