Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“
Ísland stendur verr að vígi en flest ríki Vestur-Evrópu þegar kemur að jöfnu atkvæðavægi, að mati Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors emeritus í stjórnmálafræði, sem leiddi starfshóp um breytingar á kosningakerfinu. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við hann um áhrif ójafns atkvæðavægis á stjórnmálin, um tillögur hópsins og möguleg áhrif þeirra.
Hópurinn leggur til að 36 þingmenn verði kjördæmakjörnir, sex þingmenn úr hverju kjördæmanna sex. Hin 27 þingsætin verði jöfnunarsæti og þeim útdeilt til kjördæma í hlutfalli við tölu kjósenda á kjörskrá. Þá leggur hópurinn til að úthlutun jöfnunarsæta til einstakra kjördæmislista verði breytt svo hún verði stöðugri.
Meðal efnis í þættinum:
Framsóknarflokkurinn hagnaðist mest á misvægi milli flokka á 20. öld. Árið 1931 fékk flokkurinn 36 prósent atkvæða en 58 prósent þingmanna.
Landsbyggðin nýtur forréttinda í atkvæðavægi á Íslandi og í Noregi en hefur enga aukamenn í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Færeyjum og á Grænlandi.
Engin gögn sýni að hagur landsbyggðarinnar sé betri þar sem hún nýtur forréttinda í kosningakerfinu.
Ólafur segir áhyggjur af hagsmunum landsbyggðarinnar minna á þá fyrirgreiðslupólitík sem var allsráðandi á síðustu öld.
Hvert kjördæmi fengi sex kjördæmissæti og 27 jöfnunarsæti myndu skiptast á milli þeirra eftir íbúafjölda.
Norðausturkjördæmi fengi aðeins sex þingmenn en Kraginn fengi átján þingmenn.
Hringekja jöfnunarsæta á kosninganótt yrði minna vandamál með tillögum hópsins og uppákoma á borð við Borgarnesendurtalninguna 2021 endurtæki sig ekki.
Samfylkingin fékk þrjá þingmenn í kosningunum 2016, alla af landsbyggðinni, þótt flokkurinn hefði mest fylgi í Reykjavík. Tillögur hópsins hefðu breytt því.
Réttur til að greiða atkvæði til vara gæti komið í veg fyrir að atkvæði til smáflokka falli dauð. Hópurinn leggur það ekki til en bendir á þann möguleika.
Þingmenn hafa verið 63 frá 1987 og Ólafur telur mörg rök mæla með fjölgun þeirra, þótt hún sé óvinsæl.
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Ljósmynd: Ragnar Visage/RÚV
Fleiri þættir af Gímaldið
- Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“4. október 2026
- Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi1. október 2026
- Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli28. september 2026
- Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál18. september 2026
- Ekkert óveðursský yfir Alþingi14. september 2026
- Margrét Einarsdóttir: „Ef við viljum vera aðilar að EES þá þurfum við að innleiða þessa bókun“11. september 2026



