Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál
Ísland þarf að ráða við það að vernda mikilvægar upplýsingar. Frumvarp um ný öryggislög verður lagt fram í vetur í því skyni að aðrar þjóðir viti hver hefur hvaða öryggisvottun á okkar her- og leyniþjónustulausa landi. Þingstörf eru hafin eftir viðburðaríkt sumar og forystumenn stjórnarandstöðunnar setja sig í stellingar fyrir veturinn. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir fara yfir fyrstu daga haustþingsins, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, stefnuræðu Ursulu von der Leyen og hugmynd nokkurra þingmanna um sjö ríkja bandalag við Norður-Atlantshaf sem inniheldur bæði Kanada og Bandaríkin.
Meðal þess sem rætt er í þættinum:
Haustþingið fer rólegar af stað en boðað var. Harkan sem búist var við af stjórnarandstöðunni eftir þjóðaratkvæðagreiðslu lætur bíða eftir sér.
Stemningin við stefnuræðuna, harðari tónn Þorgerðar Katrínar, ummælin um AfD og strengurinn milli valkyrjanna þriggja.
Þingmálaskráin inniheldur 153 mál, þar af 127 lagafrumvörp. Stiklað á stóru í þættinum og farið yfir valin þingmál.
Öryggisvottun á dagskrá þingsins. Ísland er herlaus þjóð sem kann ekki að geyma leyndarmál.
Tóbak, rafrettur og nikótínvörur sameinuð í einn lagabálk og sterk hagsmunaöfl munu beita sér gegn því.
Ráðherra virðist stefna að banni við hvalveiðum en segir það ekki beinum orðum.
Auknar heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi, lengra gæsluvarðhald, húsleit án dómsúrskurðar og hvers vegna víðtækar heimildir verða að daglegu verklagi.
Einstaklingssniðin heilbrigðisþjónusta og erfðaupplýsingar. Hugtök á borð við gagnagrunnur og upplýst samþykki aftur á dagskrá
Nokkrir þingmenn hafa lagt fram tillögu um að Ísland hafi frumkvæði að því að mynda sjö ríkja fríverslunarbandalag við Norður-Atlantshaf og fái Bandaríkin, Bretland, Kanada, Grænland, Færeyjar og Noreg að borðinu.
Ræða Ursulu von der Leyen: Evrópa á krossgötum og enginn slaki gagnvart uppgangi öfgaafla.
Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Fleiri þættir af Gímaldið
- Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“4. október 2026
- Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi1. október 2026
- Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli28. september 2026
- Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“19. september 2026
- Ekkert óveðursský yfir Alþingi14. september 2026
- Margrét Einarsdóttir: „Ef við viljum vera aðilar að EES þá þurfum við að innleiða þessa bókun“11. september 2026




