Vonin liggur í samtalinu – Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir
Þær hafa verið í forystu fyrir ólíka stjórnmálaflokka og segjast stundum rífast við sjónvarpið þrátt fyrir að vera hættar í pólitík. Í viðtali við Gímaldið ræða þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir um konur í pólitík, um erfiða en viðburðaríka tíma í borgarstjórn skömmu eftir hrun og það hvernig samvinna þvert á flokka skilar meiri árangri en átök.
Þáttastjórnandi er Eyrún Magnúsdóttir. Meðal þess sem kemur fram:
Hanna Birna og Svandís kynntust í borgarstjórn fyrir 20 árum og byggðu upp traust þvert á flokkslínur
Þegar efnahagshrunið skall á 2008 var Hanna Birna borgarstjóri og staða borgarinnar slæm. Meirihluti og minnihluti unnu náið saman að lausn mála og traust á borgarstjórn rauk upp í kjölfarið
Þær áttu gott samstarf og sameinuðust um breiðar línur: engar skattahækkanir, enginn niðurskurður á grunnþjónustu, engar uppsagnir starfsmanna
Á árunum 2006-2010 myndaðist grunnur fyrir sameiginlega sýn á skipulag borgarinnar, þvert á flokka
Konur í stjórnmálum fá harðari gagnrýni og endast að meðaltali eitt kjörtímabil á meðan karlar endast þrjú
Nútíminn gerir stöðu kvenna enn erfiðari: samfélagsmiðlar verðlauna hraða og gífuryrði frekar en yfirvegun og málefnaleg rök
Þær hafa áhyggjur af bakslagi í jafnréttismálum „Bakslagið er að þurfa að útskýra hluti sem við héldum að við værum komin með. Það er bakslagið."
Réttur kvenna yfir eigin líkama eigi að vera í stjórnarskrá: „Það er nákvæmlega þetta sem er fyrst sótt að þegar bakslag kemur"
Þær kalla eftir umræðu án upphrópana í Evrópumálum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Báðar telja þær þó að hagsmunum Íslands sé betur borgið í EES en ESB
Það er skortur á vinstri sjónarmiðum á Alþingi, segir Hanna Birna.
Pólitíkin fer aldrei úr þeim: Svandís fylgist með óundirbúnum fyrirspurnatímum og Hanna Birna horfir stundum á borgarstjórnarfundi í beinni
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.
Fleiri þættir af Gímaldið
- Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“4. október 2026
- Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi1. október 2026
- Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli28. september 2026
- Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“19. september 2026
- Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál18. september 2026
- Ekkert óveðursský yfir Alþingi14. september 2026




