Kosningaúrslitin: Lesið á milli línanna

· Pólitík, Samfélagið, Málefni

Hægri sveifla fór yfir landið í sveitarstjórnarkosningum. Gímaldið rýnir í niðurstöðurnar með tölfræðingnum Brynjólfi Gauta og stjórnmálaskýrandanum Aðalheiði Ámundadóttur. Í þættinum er meðal annars rætt um þetta:

Meirihlutar féllu víða um land og hægri sveiflan er staðreynd
Samfylkingin er næst stærsti flokkurinn í sveitarstjórnum á eftir Sjálfstæðisflokknum
Sjálfstæðismenn eru í sókn og Píratar horfnir af stjórnmálasviðinu
Samfylkingin og fleiri borga fyrir mistök í kosningabaráttunni
Guðlaugur Þór gæti séð sér leik á borði og nýtt niðurstöðuna til að fara í formannsslag
Miðflokkurinn og Viðreisn festa sig í sessi í flokkakerfinu
Silja Sóley Birgisdóttir er ný stjarna í stjórnmálum
Sanna Magdalena kann að hafa komið Vinstri grænum til bjargar í Reykjavík

Umsjón með þættinum hefur Eyrún Magnúsdóttir
Þátturinn er öllum opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Gímaldið

Úr hlaðvarpinu

Gímaldið

Gímaldið

Allir þættir

Fleiri þættir af Gímaldið