Er umræðan um borgina á villigötum? – Kosningaþátturinn Börn og bílastæði hefur göngu sína
Kosningaþáttur Gímaldsins rúllar af stað. Hann heitir Börn og bílastæði!
Stór hluti verkefna sveitarfélaga snýst um börn, velferð þeirra, menntun og lífsgæði. Miðað við umræðu fyrir þessar kosningar mætti þó halda að börn þrái fyrst og fremst eitt: bílastæði!
Í þáttunum verða málefnin í forgrunni en frambjóðendur fá frí. Í fyrsta þætti fara Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir yfir fjölbreyttan vettvang kosningabaráttunnar, hlutverk fjölmiðla í þessu nýja landslagi. Þær spyrja hvort þolinmæði fyrir sérhagsmunum sé að aukast aftur eftir að óþol fyrir slíku rauk upp úr öllu valdi í kjölfar efnahagshrunsins og hvaða þjónustu fjölmiðlar ættu helst að veita kjósendum til að undirbúa þá fyrir kosningarnar. Á að láta frambjóðendum og jafnvel hagsmunaaðilum eftir að skilgreina vandamálin sem þarf að leysa? Eða eiga fjölmiðlar kannski frekar að rýna í málefnin, greina þau og skýra út.
Hægt er að hlusta á fyrsta þátt Barna og bílastæða í spilaranum hér efst í fréttinni og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Börn og bílastæði er hugsaður fyrir forvitið fólk sem er þreytt á upphrópunum og rifrildum og leitar í staðinn að dýpri skilningi á þeim málefnum sem eru í brennidepli fyrir kosningarnar og reyndar líka málefnum sem fáir eru að tala um en skipta íbúa máli.
Þættirnir verða öllum opnir en við hvetjum þig til að gerast áskrifandi að Gímaldinu eða leggja til frjálst framlag
Fleiri þættir af Gímaldið
- Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“4. október 2026
- Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi1. október 2026
- Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli28. september 2026
- Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“19. september 2026
- Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál18. september 2026
- Ekkert óveðursský yfir Alþingi14. september 2026




