„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið“ – Umsögnin um Græna gímaldið sem aldrei átti að fara í loftið

· Pólitík, Samfélagið, Málefni

„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi,“ voru orð sem Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt lét falla um Græna gímaldið og fóru fyrir mistök út með umsögn um verkefnið. Í viðtali sem birt er í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt við Borghildi um tilurð þessara orða og viðbrögð við þeim innan borgarkerfisins en einnig um Græna gímaldið og um þróun í skipulagsmálum.

Í þættinum, sem Gímaldið gefur út, kemur meðal annars fram:

Umsögn með orðalaginu átti aldrei að fara í loftið og sú sem skrifaði þessi orð taldi að þeim yrði sleppt
Í tölvupósti var sagt að arkitektinn sé „að láta danskan arkitektúr hafa allt of mikil áhrif“ á sig
Borghildi hafði verið sagt upp störfum hjá borginni þegar umsögnin var skrifuð og starf hennar lagt niður
Unnið er með byggingarheimildir eins og óveiddan kvóta
Hröð uppbygging samhliða eftirgjöf í byggingarreglugerð hefur dregið úr gæðum í nýbyggingum
Milliliðir milli framkvæmdaaðila og skipulagsyfirvalda hafa bæst við á undanförnum áratug
Gera þarf kröfu um að hönnun bygginga liggi fyrir fyrr í ferlinu
Hagar hefðu getað sýnt meiri metnað í uppbyggingu á byggingunni sem nefnd hefur verið Græna gímaldið
Innanhúss hjá borginni var Græna gímaldið í upphafi kynnt sem „höfuðstöðvar stórfyrirtækis“

Þátturinn er öllum opinn en Gímaldið – sem að hluta til dregur nafn sitt af Græna gímaldinu – er fjölmiðill í áskrift.
Hlustaðu á þáttinn ...og ef þú vilt meira svona efni þá hvetjum við þig til að gerast áskrifandi eða leggja til frjálst framlag á www.gimaldid.is

Gímaldið

Úr hlaðvarpinu

Gímaldið

Gímaldið

Allir þættir

Fleiri þættir af Gímaldið