Sirkabát #10: Innflytjendur og lífeyrisgreiðslur
Nýlegar fréttir hafa bent á mikla fjölgun erlendra lífeyrisþega. En hvaða samhengi vantar? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur hjá Hagstofunni bendir á að þótt fjöldinn hafi aukist hefur hlutfallið haldist lágt: aðeins 3,6% útlendinga á vinnumarkaði þiggja örorku- eða endurhæfingarlífeyri, samanborið við 18% Íslendinga. Gott dæmi um mikilvægi þess að greina tölur áður en þeim er slegið upp.
Sirkabát er hlaðvarp sem rýnir í tölurnar í fréttum og fréttirnar í tölum.
Þáttastjórnendur Sirkabát eru Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölfræðingur og Georg Gylfason sagnfræðingur.
Sirkabát er þáttur sem Gímaldið gefur út. Hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu hér. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
Fleiri þættir af Gímaldið
- Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“4. október 2026
- Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi1. október 2026
- Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli28. september 2026
- Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“19. september 2026
- Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál18. september 2026
- Ekkert óveðursský yfir Alþingi14. september 2026




