Kosningabaráttan: Geta gervimenni klofið þjóðina?

· Pólitík, Samfélagið, Málefni

Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir fara yfir kosningabaráttuna sem nú er að taka á sig mynd vegna atkvæðagreiðslunnar í ágúst. Þær ræða nýjar baráttuhreyfingar, gæði umræðunnar og þá hættu að erlend ríki reyni að hafa áhrif á niðurstöðuna með upplýsingaóreiðu.

Af hverju er kosið um aðildarviðræður en ekki um aðild?
Hvaða þýðingu hafa nýju já- og nei- hreyfingarnar fyrir þjóðfélagsumræðuna?
Verður venjulegt fólk fyrir háði og spotti í baráttunni?
Geta Halldór Benjamín og Sólveig Anna verið saman í liði? 
Erum við óvart farin að rökræða við rússnesk gervimenni á netinu?
Hvað kostar að kaupa hundrað þúsund „áhrif" á samfélagsmiðlum?
Mun baráttan kljúfa þjóðina?

Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Gímaldið

Úr hlaðvarpinu

Gímaldið

Gímaldið

Allir þættir

Fleiri þættir af Gímaldið