Ekki íþróttakeppni þar sem stórþjóðir valta yfir smáþjóðir

· Pólitík, Samfélagið, Málefni

Er samstarf Evrópuþjóða eins og íþróttakeppni þar sem litlar þjóðir sitja alltaf eftir en þær stærri taka bikarinn? Dóra Sif Tynes, lögmaður og sérfræðingur í Evrópurétti sem meðal annars hefur starfað sem forstöðumaður lagaskrifstofu EFTA, segir að sú mynd standist ekki skoðun.
Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við Dóru um hvernig hlutirnir virka í Brussel: muninn á EES og EFTA, tveggja stoða kerfið, hversu háð Ísland er Noregi í EES-samstarfinu, hvernig lög og reglur verða til innan ESB og um áhrif og völd Íslands innan núverandi samstarfs.
Meðal þess sem kemur fram í þættinum:

Tveggja stoða kerfið: hlutverk Eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA-dómstólsins
Er Ísland viðhengi við Noreg í EES-samstarfinu?
Hvernig verða reglur innri markaðarins í Evrópðu til: framkvæmdastjórnin, Evrópuþingið og ráðherraráðið
Af hverju Evrópuþingmenn skipa sér í flokka eftir stjórnmálaskoðun, ekki þjóðerni
Landbúnaður og sjávarútvegur: hvað stendur utan EES-samningsins?
Mýtan um „íþróttakeppnina" og það af hverju sex þingsæti þýða ekki áhrifaleysi
Malta sem dæmi: 89% Maltverja eru ánægð með ESB-aðild. Malta er með sex manna þingflokk á Evrópuþinginu og á forseta þingsins 
Er fullveldisumræðan séríslensk, eða er hún líka til í öðrum aðildarríkjum? Í Belgíu var umræðan akkúrat öfug, Belgar litu á það sem staðfestingu á fullveldi að verða aðilar að Evrópubandalaginu, forvera ESB

Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag. (Reikningsupplýsingar: 0133-15-012265, kt. 490925-1040)

Gímaldið

Úr hlaðvarpinu

Gímaldið

Gímaldið

Allir þættir

Fleiri þættir af Gímaldið