Pólitísk ábyrgð og eftirmál baráttunnar

· Pólitík, Samfélagið, Málefni

Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir gera upp þjóðaratkvæðagreiðsluna, aðdraganda hennar og möguleg eftirmál. Þær rýna í hliðstæðurnar við Brexit, baráttuaðferðir fylkinganna, pólitíska ábyrgð í kjölfar niðurstöðunnar og allt sem ekki má gleymast í uppgjöri umræðunnar.
Umræðuefni og spurningar sem varpað er fram í þættinum:

Á Kristrún að henda inn handklæðinu og skilja stjórnarandstöðuna eftir í súpunni?
Báðar hreyfingarnar sitja uppi með niðurstöðuna. Hver þarf að axla ábyrgð og á hverju?
Tilheyrir upplýsingaóreiða einhverju tómarúmi sem enginn ber ábyrgð á?
Áfram Ísland hafði Brexit-handbókina á náttborðinu, en gleymdi SJÁ að læra af reynslunni? 
Evrópusinnar vanmátu tilfinningarnar og klikkuðu á samtakamættinum.
Hvað má læra af baráttu Áfram Ísland?
Hvernig verða herferðirnar gerðar upp og hvað við lærum af því að elta peningana?
Hvað getum við sótt í smiðju Brexit um uppgjör umræðunnar og þátt fjölmiðla?
Hvernig mótast viðhorf unga fólksins sem sveiflaðist til og frá í könnunum?
Hverfa Evrópumálin nú ofan í skúffu eða eru þau komin til að vera?
Eru ræðuhöld aftur komin í tísku?

Þátturinn er opinn en við bendum á að hægt er að gerast áskrifandi að Gímaldinu og styðja þannig við frekari þáttagerð og viðleitni fjölmiðilsins til að lýsa upp samfélagið. Það er einnig hægt að leggja til frjálst framlag.

Gímaldið

Úr hlaðvarpinu

Gímaldið

Gímaldið

Allir þættir

Fleiri þættir af Gímaldið