Aðalheiður Ámundadóttir: Skýrleiki í pólitíska glundroðanum
Gímaldið er á fleygiferð. Sífellt fleiri hlusta og lesa, og við finnum fyrir vaxandi áhuga á því sem við höfum fram að færa. Núna í haust viljum við segja betur frá því sjálf fyrir hvað Gímaldið stendur, hvert við stefnum og hvers vegna. Af því tilefni verða birt hér á þessum vettvangi nokkur viðtöl sem við sem stöndum að Gímaldinu tökum hvert við annað.
Í þessum þætti ræðir Eyrún Magnúsdóttir við samstarfskonu sína, Aðalheiði Ámundadóttur, stjórnmálaskýranda Gímaldsins. Aðalheiður er lögfræðimenntuð, starfaði um árabil sem blaðamaður og fréttastjóri á Fréttablaðinu, hefur kennt og stundað rannsóknir í lögfræði og starfað á Alþingi.
Þær ræða hugmyndina á bak við Gímaldið, fjölmiðil sem vill hugsa fréttaflutning fyrst og fremst sem þjónustu við áskrifendur, frekar en kapphlaup um að vera fyrst með fréttirnar. Aðalheiður segir frá því hvers vegna áskriftarlíkanið skiptir svona miklu máli fyrir efnistök og fréttamat, hugmyndum sínum um Gímaldið sem samfélag með viðburðum, morgunkaffi og beinu samtali milli blaðamanna og lesenda. Loks ræðir hún áform fyrir pólitíska umfjöllun vetrarins: vikulegan þátt með viðtali og greiningu, reglulegan þingpistil og þróun fréttabréfs Gímaldsins.
Aðalheiður og Eyrún fundu fljótt samhljóm þegar þær fóru að ræða framtíð íslenskrar fjölmiðla
Þjónusta sem kjarni Gímaldsins: að hugsa umfjöllun út frá því hverju hún skilar lesandanum, ekki hv mörgum smellum hún skilar
Hvernig tekjumódel fjölmiðils, auglýsingar, styrktaraðilar eða áskrifendur, hefur bein áhrif á fréttamat og efnistök
Draumurinn um Gímaldið sem samfélag: viðburðir, morgunkaffi og milliliðalaust samtal milli blaðamanna og áskrifenda
Hvað varð um gömlu, líflegu Facebook-umræðuna á Íslandi og er hægt að endurskapa hana í minni og markvissari mynd?
Áform Aðalheiðar fyrir stjórnmálaumfjöllun vetrarins: vikulegur þáttur með viðtali og dýpri greiningu á einu máli
Reglulegur þingpistill sem gefur yfirsýn yfir stöðuna á Alþingi, stemningu og átök á bak við tjöldin
Af hverju erlend stjórnmál, sérstaklega í Evrópu, eru orðin órjúfanlegur hluti af umfjöllun um íslensk stjórnmál
Hvernig lesendur og áskrifendur geta haft beint samband við Aðalheiði og af hverju hún vill endilega heyra frá þeim
Hefur þú ábendingu eða skoðun á því sem Aðalheiður fer yfir í þessum þætti? Sendu henni línu á adalheidur@gimaldid.is — eða almennar ábendingar á ritstjorn@gimaldid.is.
Fleiri þættir af Gímaldið
- Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“4. október 2026
- Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi1. október 2026
- Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli28. september 2026
- Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“19. september 2026
- Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál18. september 2026
- Ekkert óveðursský yfir Alþingi14. september 2026




