Margrét Einarsdóttir: „Ef við viljum vera aðilar að EES þá þurfum við að innleiða þessa bókun“

· Pólitík, Samfélagið, Málefni

Hvað gerist ef við klárum ekki að innleiða bókun 35? Margrét Einarsdóttir lagaprófessor og sérfræðingur Evrópurétti er í viðtali við Gímaldið og fer yfir þessa umtöluðu bókun. Umræður um Bókun 35 við EES – samninginn hafa verið fyrirferðarmiklar að undanförnu. Íslendingar hafa skuldbundið sig til að innleiða þessa bókun en ekki staðið við það.

Margrét segir mikilvægt að þingið innleiði Bókun 35 sem fyrst og segir málið ekki koma niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu við á nokkurn hátt. Hún telur afleiðingarnar alvarlegar verði það ekki gert. Þá stefni í að málið verði tekið fyrir í EFTA dómstólnum og hún segir nánast gefið að íslenska ríkið tapi því.
Ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp um innleiðingu bókunarinnar á þingi í þessum mánuði. Þetta verður í fjórða skipti sem frumvarpið er lagt fram, tvisvar sinnum hefur það dagað uppi í tíð núverandi ríkisstjórnar og einu sinni í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar, Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. 
Nú telja stjórnarflokkarnir brýnt að bókunin verði innleidd til að uppfylla skuldbindingar íslenska ríkisins gagnvart EES-samningnum. Hluti stjórnarandstöðunnar hefur gert tortryggilegt að þörf sé á lögfestingu Bókunar 35 og er útlit fyrir að einhver átök verði um það á þingi. 
Í þættinum er farið yfir hvernig viðsnúningur í dómaframkvæmd Hæstaréttar Íslands síðustu ár hefur haft þau áhrif að nú er íslenska ríkið undir miklum þrýstingi að innleiða bókunina.

Helga Arnardóttir hefur umsjón með þættinum.

Gímaldið

Úr hlaðvarpinu

Gímaldið

Gímaldið

Allir þættir

Fleiri þættir af Gímaldið