Hver er að biðja um allar þessar verslanir og lengda afgreiðslutíma?
Matarverð heldur áfram að hækka þrátt fyrir boðaðar lækkanir matvörurisanna. Dagvöruvísitalan hækkaði um 0,33% frá ágúst til október, mest í Bónus eða um 0,49%, og skýrist hækkunin einkum af kjöti og mjólkurvörum. Hagar og Nettó boðuðu tveggja prósenta lækkanir og Krónan frysti verð á 647 vörum til áramóta, en dramatískar lækkanir hafa ekki orðið. Matvörur hér eru þær dýrustu af 27 Evrópulöndum samkvæmt Eurostat. Með 8% stýrivexti og 5,9% verðbólgu má búast við áframhaldani hækkunum eftir áramót. Helga Arnardóttir fjallar um matarverð og ræðir við Bjarka Stein Benjamínsson verkefnastjóra verðlagseftirlits ASÍ.
Prís er ennþá með lægsta vöruverðið samkvæmt nýjustu úttekt verðlagseftirlits ASÍ.
Af fjórum lágvöruverðsverslunum á markaði, kemur Bónus á eftir Prís, Krónan fylgir þar næst á eftir og Nettó er með hæsta verðið. Tekið skal fram að Prís og Nettó eru í eigu sama félags, Samkaupa.
Hvað er raunverulega að halda matarverði svona háu og af hverju geta matvörurisarnir ekki gengið lengra í verðlækkunum?
Mögulega eru fjöldi verslana og lengdur afgreiðslutími að hafa áhrif á hærra vöruverð.
Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.
Fleiri þættir af Gímaldið
- Margrét Bjarnadóttir: Að hlæja í gegnum harminn21. nóvember 2026
- Heimilislausar konur og ofbeldið sem þær eru beittar20. nóvember 2026
- Flokkaflakk, fjárlög og „man flu“ á Alþingi19. nóvember 2026
- Formaður Afstöðu: Hræðsluáróður og stefnuleysi í fangelsismálum13. nóvember 2026
- Sigurður Ingi: „Þetta fór fram hjá mér og fram hjá þinginu“11. nóvember 2026
- Hallgrímur Helgason: Ónæmur fyrir hakkavélinni7. nóvember 2026


