Flokkaflakk, fjárlög og „man flu“ á Alþingi
Ingvar Þóroddsson yfirgaf Viðreisn í vikunni og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann er þriðji þingmaðurinn sem yfirgefur flokk sinn eða þingflokk í stjórnarmeirihlutanum á fáum mánuðum, en sá eini sem gengur til liðs við stjórnarandstöðuflokk. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir fara yfir flokkaskiptin og hvað þau þýða fyrir ríkisstjórnina og Viðreisn.
Í þættinum:
25 þingmenn hafa yfirgefið flokk á miðju kjörtímabili á þessari öld, um einn á ári að meðaltali. 21 karl og 4 konur
Hvað greinir liðhlaup Ingvars frá flokkaskiptunum vorið 2011, þegar tekist var á um ESB og Icesave?
Fjárlögin sem prófsteinn á stjórnarsamstarf og agi Sjálfstæðisflokksins
Af hverju hefur enginn hlaupist undan merkjum í Samfylkingunni?
Staða ríkisstjórnarinnar og vandinn innan Viðreisnar
Í upphafi þáttar má heyra upptöku frá Alþingi
Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.
Fleiri þættir af Gímaldið
- Margrét Bjarnadóttir: Að hlæja í gegnum harminn21. nóvember 2026
- Heimilislausar konur og ofbeldið sem þær eru beittar20. nóvember 2026
- Formaður Afstöðu: Hræðsluáróður og stefnuleysi í fangelsismálum13. nóvember 2026
- Hver er að biðja um allar þessar verslanir og lengda afgreiðslutíma?12. nóvember 2026
- Sigurður Ingi: „Þetta fór fram hjá mér og fram hjá þinginu“11. nóvember 2026
- Hallgrímur Helgason: Ónæmur fyrir hakkavélinni7. nóvember 2026


