Margrét Bjarnadóttir: Að hlæja í gegnum harminn

· Pólitík, Samfélagið, Málefni

Bókin Varkár eftir Margréti Bjarnadóttur er án efa talin vera svarti hesturinn í jólabókaflóðinu í ár. Í bókinni skrifar Margrét um þrána eftir því að eignast barn og sársaukann sem því fylgir þegar það gengur ekki eftir en hún veltir líka fyrir sér tilgangi lífsins og öðrum atriðum sem við öll tengjum við með ljóðrænum og ekki síst húmorískum hætti.  Bókin er ein af þeim fyrstu sem kom út í haust og ekki stóð á viðtökum. Hún seldist upp á einum mánuði og fékk glimrandi viðtökur frá lesendum og gagnrýnendum. Þetta er fyrsta skáldverk Margrétar eða skáldævisaga eins og hún myndi kallast en áður hefur hún  gefið út bækurnar Orðið á götunni og Líf mitt, til dæmis (dagbækurnar 1998-2002).
 Í þættinum ræðir Helga Arnardóttir við Margréti meðal annars um nýju bókina og óvænta velgegni hennar, áskoranir við að reyna að eignast barn, áföll, líðan og upplifun okkar þegar hlutirnar ganga ekki upp, húmorískar skilgreiningar á því hvað sé að vera varkár og feril hennar sem sviðslistamaður, danshöfundur og leikkona.  
Margréti er margt til lista lagt enda er hún danshöfundur að mennt, hefur starfað sem sviðslistamaður og meðal annars leikið stórt hlutverk í kvikmynd Baltasars Kormáks Eiðnum fyrir tíu árum. Bókin Varkár var upphaflega útskriftarverkefni hennar í meistaranámi í ritlist við háskóla Íslands og naut hún leiðsagnar Auðar Övu Ólafsdóttur rithöfundar sem hvatti hana til að fá verkið útgefið.

Gímaldið

Úr hlaðvarpinu

Gímaldið

Gímaldið

Allir þættir

Fleiri þættir af Gímaldið