Heimilislausar konur og ofbeldið sem þær eru beittar

· Pólitík, Samfélagið, Málefni

Heimilisleysi kvenna er að mörgu leyti ósýnilegt. Þær gista hjá vinum og ættingjum, flakka á milli sófa, upplifa jafnvel ofbeldi á þeim stöðum þar sem þær fá þak yfir höfuðið og birtast sjaldan í opinberum tölum. Enginn veit hversu margir eru heimilislausir á Íslandi og hér er hvorki til lögbundin skilgreining á heimilisleysi né landsstefna. Erla Hlynsdóttir ræðir við Kristínu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Rótarinnar, og Kristínu Hjálmarsdóttur, sérfræðing hjá RIKK, en þær eru verkefnisstjórar INTERACT á Íslandi, Evrópuverkefnis sex landa sem miðar að því að bæta þjónustu við heimilislausar konur. 
Meðal þess sem rætt er um:

Falið heimilisleysi: Tengsl heimilisleysis kvenna við ofbeldi og fátækt, og evrópska ETHOS-flokkunin, en samkvæmt henni teljast konur sem búa við ofbeldi heimilislausar
Skortur á gögnum: Hagstofan byggir á lögheimilisskráningu, Landspítalinn skráir ekki heimilisleysi og opinberar tölur eru ekki alltaf kyngreindar
Ástæður þess að heimilislausar konur leita ekki til lögreglu eftir ofbeldi er meðal annars ótti við að gerandinn hefni sín, ótti við barnavernd og það að neysluskammtar eru enn ólöglegir
Ekkert kvennaathvarf er fyrir konur sem nota vímuefni, og Ísland hefur fengið athugasemdir vegna þess frá eftirlitsnefnd Istanbúlsamningsins
Konukot: Konum sem leita þangað hefur fækkað, úr um hundrað á ári niður í 73 í fyrra, og viðmælendur þakka það átaki Reykjavíkurborgar í að koma konum í húsnæði
Húsnæði fyrst og kynjanálgun í málefnum heimilislausra, þar sem viðmælendur segja Ísland standa framarlega í Evrópu
INTERACT:  Í gegnum verkefnið var stofnaður fyrsti þverfaglegi samráðsvettvangurinn um málefni heimilislausra á Íslandi

Viðmælendur: Kristín Pálsdóttir og Kristín Hjálmarsdóttir
Umsjón: Erla Hlynsdóttir
Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi á gimaldid.is/askrift eða lagt til frjálst framlag.

Gímaldið

Úr hlaðvarpinu

Gímaldið

Gímaldið

Allir þættir

Fleiri þættir af Gímaldið